Næturflug í kvöld til Parísar. Reyni alltaf að leggja mig fyrir þessi flug en alltaf þegar ég þarf að leggja mig yfir daginn þá virðist það e-n veginn ómögulegt. Aftur á móti þegar ég sé rúmið mitt í hyllingum og veit fátt betra en að kúra mig ofan í sæng, þá er enginn tími til þess. Var að vakna við símtal eftir 30 mínútna lögn og gat ekki sofnað aftur, heldur fékk ég þessa svakalegu löngun til að fara út að hlaupa. Er það bara eðlilegt? En mér veitir ekkert af þannig damn straight að ég ætla að nýta mér þessa löngun!
Sé ykkur í nótt ef þið eruð á leið til/frá París.
Au revoir!
Ég og elsku Anna María æskuvinkona á leiðinni í fyrsta morgunflug sumarsins.
ER
6 comments:
Bara flottar!! :)
Myndarlegar :)
Vá þú tekur þig sko vel út! Sakna þess mikið að fá að vera með hattinn og slaufuna um hálsinn, jafnast ekkert á við það!
Njóttu!
-Björk
nehei, fenguð þið strax bara að fljúga saman!?? en gaman, þið eruð voða fínar :)
Þið eruð svo glæsilegar saman :)
-Ingveldur
Vá fyndið, ég vissi ekki að þú værir líka flugfreyja. Ertu búin að vera það lengi?
Ef þú nærð ekki að leggja þig finnst mér best að fá mér sjúklega gott berry energy búst (sem ég kaupi mér alltaf á flugvellinum hérna á ARN).
Kveðjur frá ARN
Post a Comment